Þjóðhagslegt mikilvægi sparisjóðanna - fréttatilkynning frá SÍSP
Sparisjóðirnir á Íslandi fagna því að áfanga skuli náð við endurreisn bankanna og að línur hafi skýrst hvað eignarhald þeirra varðar. Mikilvægt er að endurfjármögnun sparisjóðanna ljúki hið allra fyrsta og er nú beðið svars við beiðni þeirra um tímabundna aðstoð frá ríkissjóði.
Þjóðhagslegt mikilvægi sparisjóðanna er augljóst, ekki síst eftir að eignarhald viðskiptabankanna hefur skýrst. Auðvelt er að sýna fram á með útreikningum að það muni kosta þjóðfélagið 80-120 milljarða króna að veita ekki þeim tæpu 20 milljörðum króna til sparisjóðanna sem neyðarlögin heimila. Þess vegna verður ekki öðru trúað en erindi sparisjóðanna fái framgang þar sem miklir hagsmunir eru í húfi.
Vegna umræðna um hagkvæmni sparisjóða má geta þess að stjórn Byrs sparisjóðs hefur tekið af allan vafa um vilja sinn til frekara samstarfs sparisjóða á öllum þeim sviðum sem nýsamþykkt lög heimila. Slíkt samstarf mun spara umtalsverðar fjárhæðir og gera sparisjóði fjárhagslega öflugri og enn samkeppnishæfari fjármálafyrirtæki.
Í dag eru starfandi 12 sparisjóðir á Íslandi með 625 starfsmenn. Í skýrslu Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika segir: „Sparisjóðirnir eru margir en smáir í samanburði við viðskiptabankana. Heildareignir þeirra nema nú um fimmtungi af heildareignum innlánsstofnana. Þrátt fyrir smæðina sinna þeir mikilvægri fjármálaþjónustu víða á landsbyggðinni auk þess að gegna mikilvægu hlutverki í samkeppni við viðskiptabankana.“
Um helmingur landsmanna eða 47,5% setja sparisjóðina sem sinn fyrsta valkost, hyggist menn skipta um fjármálafyrirtæki. Mun færri velja þá banka sem verið er að endurreisa sem sinn fyrsta valkost á markaði. Einnig kemur fram í sömu rannsókn að helmingi fleiri Íslendingar treysta sparisjóðunum samanborið við viðskiptabankana þrjá. Byggist þetta á niðurstöðum rannsóknar frá MMR sem framkvæmd var í september 2009.
Nánari upplýsingar:
Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sparisjóða
Sími 896 4132.
Til baka
Fleiri fréttir