Mikilvægur áfangi í fjárhagslegri endurskipulagningu Byrs


Fjármálaráðuneytið fundaði í gær með stjórnendum Byrs sparisjóðs, ásamt ráðgjöfum beggja aðila og fulltrúum kröfuhafa.

Fjallað var um forsendur fyrir því að stjórnvöld leggi nýtt stofnfé í Byr vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóðsins, sem ætlað er að tryggja að hann uppfylli skilyrði fyrir eiginfjár- og lausafjárstöðu og um rekstrarhæfi. Að mati ráðuneytisins náðist á fundinum mikilvægur áfangi í átt að endanlegu samkomulagi og að því að treysta varanlega fjárhagslegar stoðir Byrs.

Frekari viðræður við Byr og kröfuhafa um endanlega útfærslu á fyrirliggjandi lausn eru fyrirhugaðar í upphafi nýs árs.

Þetta er í samræmi við markmið stjórnvalda um að styðja við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins á Íslandi. Með lögum nr. 125/2008 var fjármálaráðuneytinu veitt heimild til að leggja sparisjóðum til nýtt stofnfé. Niðurstöðu varðandi aðra sparisjóði er að vænta á næstunni.
 
Tekið af vef fjármálaeftirlitsins

Til baka

Fleiri fréttir




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð