Stóra upplestrarkeppnin


Nú líður senn að lokahátíðum Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk sem Sparisjóðirnir á Íslandi styrkja með myndarlegu framlagi. Það hafa þeir gert frá upphafi keppninnar.

Fyrsta lokahátíðin verður haldin á Möðruvöllum í Hörgárdal þ. 2. mars og sú síðasta fer fram í Hafnarborg í Hafnarfirði þ. 23. mars. Lokahátíðirnar verða út um allt land, 32 talsins, og færir fulltrúi sparisjóðanna vinningshöfum í 1., 2. og 3. sæti peningaverðlaun.

Sparisjóðirnir á Íslandi eru stoltir af því að vera aðalstyrktaraðilar jafn uppbyggilegs og góðs viðburðar og Stóru upplestrarkeppninnar. Henni hefur vaxið fiskur um hrygg og er hún nú árlegur viðburður í íslensku skólastarfi sem hefst á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Segja skipuleggjendur hennar að keppnin sjálf sé í raun aukaatriði og forðast ætti að einblína á sigur. Það sem mestu máli skiptir er að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins og allur upplestur í tengslum við keppnina fremur í ætt við hátíð en keppni.

Sparisjóðirnir á Íslandi taka virkan þátt  í Stóru upplestrarkeppninni í ár og má búast við sannkallaðri hátíðastemningu um land allt, rétt eins og undangengin ár.

Samband íslenskra sparisjóða óskar öllum þátttakendum hátíðanna velfarnaðar og vonar að Stóra upplestrarkeppnin megi halda áfram að vaxa og dafna.

Til baka

Fleiri fréttir




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð