Sparisjóðirnir mældust efstir í Íslensku ánægjuvoginni


Íslenska ánægjuvogin var veitt í 11. sinn í dag, 23. febrúar 2010. Mældust sparisjóðirnir efstir í flokki fjármálafyrirtækja. Sparisjóðurinn var í fyrsta sæti með 78,6 stig og Byr-sparisjóður í öðru sæti með 69,9 stig af 100 mögulegum.

Það má því með sanni segja að viðskiptavinir sparisjóðanna séu þeir ánægðustu 11. árið í röð en frá því að mælingar hófust hafa Sparisjóðirnir á Íslandi ávallt komið best út í sínum viðmiðunarflokki og hefur Íslenska ánægjuvogin því fallið þeim í skaut. Þetta sýnir að stuðningur viðskiptavina við sparisjóðina er eindreginn og njóta þeir mikils traust. Það er ekki hvað síst að þakka starfsfólki sparisjóðanna en því er mikið í mun að veita persónulega og heiðarlega þjónustu þar sem hagsmunir viðskiptavinarins eru settir á oddinn. Samband íslenskra sparisjóða óskar Sparisjóðunum á Íslandi til hamingju með þennan glæsilega árangur – 11. árið í röð.
 

 

Um framkvæmd Íslensku ánægjuvogarinnar
Gerð var netkönnun frá desember 2009 til janúar 2010 og var úrtakið slembið úr þjóðskrá á aldrinum 16-79 ára. Niðurstöður byggja á svörum rúmlega 6000 manns eða um 250 viðskiptavinum hvers fyrirtækis. Í þetta sinn voru 25 fyrirtæki í 5 atvinnugreinum sem voru mæld. Nánari upplýsingar má finna á
http://stjornvisi.is/Islenskaanaegjuvogin/
 
Sparisjóðirnir eru:
 
Byr sparisjóður - Akureyri - Garðabær - Hafnarfjörður - Kópavogur - Reykjavík

Sparisjóður Bolungarvíkur - Bolungarvík - Suðureyri

Sparisjóður Höfðhverfinga - Grenivík

Sparisjóðurinn í Keflavík - Keflavík - Vogar - Sandgerði - Njarðvík - Garður - Grindavík - Hvammstangi - Þingeyri - Ísafjörður - Flateyri - Súðavík - Patreksfjörður - Króksfjarðarnes - Bíldudalur - Tálknafjörður

AFL sparisjóður - Siglufjörður - Sauðárkrókur

Sparisjóður Norðfjarðar - Neskaupstaður - Reyðarfjörður

Sparisjóður Ólafsfjarðar - Ólafsfjörður

Sparisjóður Strandamanna - Hólmavík - Norðurfjörður

Sparisjóður Suður-Þingeyinga - Laugar - Húsavík - Reykjahlíð - Fosshóll

Sparisjóður Svarfdæla - Dalvík - Hrísey

Sparisjóður Vestmannaeyja - Vestmannaeyjar - Selfoss - Hveragerði - Hornafjörður - Djúpivogur - Breiðdalsvík

Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis
- Þórshöfn - Kópasker - Raufarhöfn.
 
 
Er ekki sparisjóður í næsta nágrenni við þig?

Til baka

Fleiri fréttir




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð