Forsetinn heimsækir Norðlingaskóla
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti Norðlingaskóla í gær í tilefni þess að hann hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2009. Forsvarsmenn SÍSP voru með honum í för og færðu Norðlingaskóla Íslands Atlas að gjöf.
Móttakan hófst klukkan 10 í Björnslundi sem er útiskólastofa skólans og er í skógarlundi í nágrenni hans. Þar tóku skólastjórnendur og nemendur á móti forsetanum og fylgdarliði hans og sögðu frá skólanum og lundinum. Því næst var gengið um Norðlingaskóla, um Mörkina að Lundi og Þinganesi, og litið við í ýmsa bekki á öllum skólastigum. Heimsókninni lauk kl. 12:30 með því að forsetahjónunum, fylgdarliði, starfsfólki og foreldrafulltrúum í skólaráði og stjórn var boðið upp á súpu að hætti Norðlinga.
Samband íslenskra sparisjóða er aðalstyrktaraðili Íslensku menntaverðlaunanna og hefur verið það frá upphafi.
Norðlingaskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin fyrir að sinna nýsköpun og vera farsæll í sínu fræðslustarfi. Í greinargerð dómnefndar Íslensku menntaverðlaunanna segir m.a. um skólann: „Norðlingaskóli í Reykjavík hefur þann stutta tíma sem hann hefur starfað getið sér orð fyrir framsækni, nýsköpun og einkar heildstæða og skýra stefnumörkun og orðið fyrirmynd sem fólk víða að kemur til þess að skoða og læra af. Starf skólans er grundvallað á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo hann megi á eigin forsendum þroskast og dafna sem sjálfstæður, sterkur og ekki síst lífsglaður einstaklingur."
Hér má sjá forsetahjónin og nemendur Norðlingaskóla.
Til baka
Fleiri fréttir