Verklagsreglur um úrlausn skuldavanda fyrirtækja


Samþykktar hafa verið á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Reglurnar hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins með bréfi 2. mars 2010 eins og kveðið er á um í lögum nr. 107/2009.

Reglurnar kveða á um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins og skulu gilda til jafnlengdar því ákvæði laganna. Markmið vinnu við endurskipulagningu fyrirtækja er að hámarka endurheimtur fjármála-fyrirtækja, en höfð er hliðsjón af þeim skilyrðum og sjónarmiðum sem lýst er í reglum þessum og lögum nr. 107/2009.

Samhliða þessum reglum vinna fjármálafyrirtæki í samræmi við önnur lög sem um starfsemi þeirra gilda, sbr. lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998 og fleiri lög. Á grunni þeirra laga hafa síðan öll fjármálafyrirtæki sem þessar reglur varða sett sér innri lána- og afskriftareglur sem fjalla um framkvæmd og ákvarðanatöku í einstökum lánamálum.  Auk þess þurfa fjármálafyrirtæki í starfsemi sinni að fylgja almennum lögum eins og samkeppnislögum, 44/2005, lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2003 og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006.

Kynnið ykkur reglurnar hér:

Kynningarbæklingur SFF um sameiginlegu reglurnar (PDF 35 KB)
Sameiginlegar verklagsreglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja (PDF 114 KB)

Til baka

Fleiri fréttir




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð