Forseti veitir Íslensku menntaverðlaunin
Forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin þann 8. júní 2010 í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Verðlaunin eru miðuð að íslensku grunnskólastarfi og þeim ætlað að hvetja og verðlauna þá sem stuðlað hafa að grósku í því starfi.
Íslensku menntaverðlaunin sem forseti Íslands veitir voru stofnuð í byrjun árs 2005. Eru þau byggð á grundvelli hugmynda frá forsetanum. Sparisjóðirnir hafa haft veg og vanda af skipulagningu, framkvæmd og fjármögnun verðlaunanna. Verðlaunin eru veitt í byrjun júní ár hvert og hafa þau og stuðningur sparisjóðanna við þau vakið mikla athygli.
Verðlaunin eru aðallega bundin við starfsemi í grunnskólum og eru þau veitt í fjórum flokkum:
1. Skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.
Verðlaunahafi fyrir árið 2010 er Lækjarskóli í Hafnarfirði.
2. Kennurum sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað framúr.
Verðlaunahafi fyrir árið 2010 er Ragnheiður Hermannsdóttir kennari við Háteigsskóla.
Greinargerð dómnefndar. 3. Ungu fólki sem í upphafi kennsluferils hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
Verðlaunahafi fyrir árið 2010 er Linda Heiðarsdóttir kennari í Laugalækjaskóla.
Greinargerð dómnefndar. 4. Höfundum námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi.
Verðlaunahafi fyrir árið 2010 er Iðunn Steinsdóttir.
Greinargerð dómnefndar.
Frá afhendingunni 2010. Nemendur Lækjarskóla í Hafnafirði taka á móti verðlaununum.
Tvær dómnefndir hafa starfað í aðdraganda verðlaunaveitingarinnar. Í þeirri dómnefnd sem fjallaði um tilnefningar í fyrsta og fjórða flokki, þ.e. skóla og námsefni, sátu:
• Ellert Borgar Þorvaldsson, skólastjóri Ártúnsskóla
• Svafa Grönfeldt, fv. rektor Háskólans í Reykjavík
• Börkur Hansen, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
• Finnur Friðriksson, lektor við Háskólann á Akureyri
• Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur.
Í dómnefnd sem fjallaði um tilnefningar í öðrum og þriðja flokki, þ.e. kennara, sátu:
• Hafrún Dóra Júlíusdóttir, fv. formaður skólanefndar Hafnarfjarðar
• Ragnar Z. Guðjónsson, fv. sparisjóðsstjóri
• Ólafur H. Jóhannsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
• Valgeir Gestsson, fv. skólastjóri
• Ragna Ólafsdóttir, fv. skólastjóri.
Sparisjóðirnir á Íslandi óska verðlaunahöfum hjartanlega til hamingju.
Til baka
Fleiri fréttir