Vegna erlendra lána sparisjóðanna
Sparisjóðirnir bjóða viðskiptavinum sínum með erlend lán að greiða fasta 5.000 króna afborgun á hverja milljón á mánuði.
Á meðan óvissa ríkir um lögmæti lána í erlendri mynt bjóða Sparisjóðirnir viðskiptavinum sínum, sem hafa erlend langtímalán með veði í íbúðarhúsnæði, að greiða til bráðabrigða fasta 5.000 króna afborgun af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls, á mánuði. Þetta gildir þar til óvissu um lögmæti lánanna er eytt og hægt verður að reikna stöðu, afborganir og vexti með fullri vissu.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri SÍSP.
Sími: 896-4132.
Til baka
Fleiri fréttir