Eldri borgarar

Kynningar á niðurstöðum rannsóknar á högum eldri borgara

Að beiðni Félags eldri borgara framkvæmdi Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands (RKHÍ) rannsókn á framlagi eldri borgara til samfélagsins sem Sparisjóðirnir á Íslandi styrktu myndarlega í alla staði. Voru það Bryndís Víglundsdóttir, Ingibjörg Harðardóttir og Amalía Björnsdóttir sem stóðu að rannsókninni árið 2006 og var hún gefin út í nóvember sama ár. Ákveðið hafði verið að niðurstöður rannsóknarinnar, hverjar sem þær yrðu, skyldu kynntar um land allt.

 

Fundur eldri borgara á Klaustri


Hófust kynningarnar í félögum eldri borgara um landið veturinn 2008 og hvarvetna var reynt að ákveða fundarstaði í samráði við sparisjóðina þar sem þeir eru starfandi. Þannig var fundarstaður og tími ákveðinn á hverjum stað í samráði við heimamenn, yfirleitt formenn félaganna og sparisjóðina. Flestar dagsetningar stóðust, þó að fresta yrði fundi í Hveragerði vegna óveðurs sem skall á. Skemmst er frá að segja að flest stóðst sem heimamenn höfðu tekið að sér að gera. Kórar eldri borgara voru fengnir til að syngja þar sem hægt var að koma því við og sungu á eftirfarandi stöðum: Höfn, Akureyri, Hveragerði, Hafnarfirði, Akranesi og Sauðárkróki. Á þremur fundum sungu barnakórar, á Reyðarfirði, í Þingeyjarsveit og Kópavogi. Bryndís Víglundsdóttir var á öllum fundunum og flutti aðfararorð og Ingibjörg Harðardóttir eða Amalía Björnsdóttir kynntu niðurstöður rannsóknarinnar. Fulltrúi sparisjóðanna flutti lokaorð og fundarstjóri á mörgum fundanna var Gísli Jafetsson. Alls voru haldnir 16 fundir um land allt og var mæting alls staðar mjög góð.

Skýrslur um niðurstöður rannsóknarinnar voru afhentar formönnum félaga eldri borgara í fundarlok og er vitað að þær verði til umfjöllunar á félagsfundum eldri borgara. Þannig er kynningum ekki enn lokið.
 
 

Kór eldri borgara syngur á Sauðárkróki
 
 
Skýrsluna má nálgast hér:
 
Framlag eldri borgara - fyrri hluti (pdf 259 Kb)
Framlag eldri borgara - seinni hluti (pdf 291 kb)


 




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð