Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin er mikilvægt og stórt verkefni tengt grunnskólunum um land allt og hafa sparisjóðirnir styrkt hana myndarlega í mörg ár og hyggjast halda því áfram. Það hafa þeir gert með fjárframlögum en Sparisjóðirnir á Íslandi veita þremur vinningshöfum peningaverðlaun á hverjum stað fyrir sig. Einnig taka þeir virkan þátt með því að senda fulltrúa sinn í dómnefnd á lokadegi hátíðarinnar og til að afhenda verðlaunin.

Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu og lýkur í mars. Segja má að keppnin fari fram í tvennu lagi. Í fyrri hlutanum er lögð sérstök rækt við vandaðan upplestur og framburð í hverjum bekk. Þær vikur í skólunum sem helgaðar eru vönduðum upplestri eru mikilvægasti hluti keppninnar. Kennarar hvers skóla hafa veg og vanda af þessum hluta. Þessum hluta lýkur með upplestrarhátíð í hverjum skóla þar sem tveir til þrír nemendur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans.

Síðari hluti keppninnar er haldinn í góðum samkomusal í byggðarlaginu í mars. Undirbúningsnefnd velur lesefni sem flutt verður en keppendur fá upplýsingar um hvað þeir eiga að lesa með góðum fyrirvara og geta undirbúið sig.

Á lokahátíðinni velur dómnefnd þrjá bestu upplesarana. Víða er lokahátíðin með stærstu viðburðum ársins í byggðalaginu. Í hverju byggðarlagi er skipuð þriggja manna héraðsnefnd sem sér m.a. um undirbúning vegna lokahátíðar og að skipa fólk í dómnefnd.
 
Vefur Stóru upplestrarkeppninnar er http://www.hafnarfjordur.is/upplestur
 
Frá verðlaunaafhendingu í Hafnarfirði 2010
Verðlaunahafar Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði árið 2010. 
Mynd tekin af vef Álftanesskóla.



Hér sést Gísli Jafetsson, yfirmaður fræðslu- og upplýsingamála SÍSP
ásamt verðlaunahöfum úr Lágafellsskóla árið 2008.




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð