Kiwanis

Sparisjóðirnir á Íslandi voru bakhjarl söfnunar Kiwanis fyrir Geðhjálp, BUGL og Forma sem fór fram í október árið 2007. Kjörorð söfnunarinnar í þetta sinn var Lykill að lífi, en er Kiwanis-lykillinn landsmönnum vel kunnur. Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur staðið fyrir landssöfnunum síðan 1974 með sölu á K-lyklinum til að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni geðfatlaðara. Hefur ágóðinn ávallt runnið til fjölda verkefna til styrktar þeim.

Árið 2007 var áhersla lögð á ungt fólk með geðraskanir og rann ágóðinn af sölu K-lykilsins til Geðhjálpar, BUGLs og Forma.
 

Frá undirritun samnings við stuðningsaðila um K-daginn 2007.
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri SÍSP, er annar frá vinstri.




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð