Hraun í Öxnadal

Sparisjóðirnir eru meirihlutaeigendur í hlutafélagi, Hraun í Öxnadal ehf.,  sem var stofnað fyrir nokkrum árum til að kaupa Hraun í Öxnadal og gera það að menningarsetri í minningu Jónasar Hallgrímssonar. Enrubótum á bænum er að ljúka og brátt verður aðstaðan kynnt og merkingar settar upp sem undirstrika þátt sparisjóðanna í verkefninu. Er verkefnið styrkt úr Menningarsjóði sparisjóðanna.
 
Hluti jarðarinnar Hrauns í Öxnadal var friðlýstur af umhverfisráðherra árið 2007 með það að markmiði að vernda svæðið til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. Þar er landslag og náttúrufar fjölbreytt og minjar um horfna búskaparhættir. Verndargildið tengist einnig bókmenntaarfi þjóðarinnar en þar fæddist skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson.
 
Umsjón og rekstur fólkvangsins á Hrauni verður í höndum þriggja manna umsjónarnefndar sem skipuð er einum fulltrúa Hörgárbyggðar, einum fulltrúa Umhverfisstofnunar og einum fulltrúa Hrauns í Öxnadal ehf.

 




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð