Undraheimur auranna

Forsíða námsefnisins Undraheimur auranna Undraheimur auranna – fjármálafræðsla í skólabúðunum á Reykjum

Undraheimur auranna er námsefni í fjármálum sem Fræðslumiðstöð Sparisjóðanna samdi sérstaklega í samvinnu við Skólabúðirnar í Reykjaskóla fyrir fjármálakennslu þar.

Námsefnið fjallar um sögu peninga, banka og sparisjóða, bæði í heiminum öllum og á Íslandi. Gengur það m.a. út á mikilvægi þess að láta drauma sína rætast með því að kunna að gera áreiðanlega fjárhagsáætlun.

Kennsla námsefnisins er byggð á stuttum fyrirlestrum, hópumræðum og verkefnum þar sem áhersla er lögð á leiki tengda raunaðstæðum og hópefli til að efla vitund nemenda um ábyrgð sína gagnvart náunganum og sjálfum sér. Nemendur fá dagbók við komuna sem kemur inn á mikilvægi þess að spara pening, leggja fyrir og efla kostnaðarvitund nemenda með raunverkefnum.

Það er von sparisjóðanna að námsefnið verði til þess að ungmenni geri sér grein fyrir að sparnaður er lykilatriði í að láta drauma sína rætast. Undraheimur auranna er vel heppnað framtak sem kemur nemendum á óvart, því oft eiga þeir ekki von á að það geti verið gaman að fjalla um fjármál.



Myndin sýnir Skólabúðirnar á Reykjum og sveitina í kring.




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð