Tryggingasjóður sparisjóða
Tryggingasjóður Sparisjóða var stofnaður 9. nóvember 1985 og hefur hann tekið talsverðum breytingum síðan hann tók til starfa 1. janúar 1986. Í samþykktum sjóðsins kemur fram að meginhlutverk hans sé að tryggja hagsmuni viðksiptamanna sparisjóða og í því skyni fjárhagslegt öryggi sparisjóða og full skil á innlánsfé við endurskipulagningu og slit sparisjóða sbr. nánar ákvæði laga 98/1999. Með lögunum um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, varð til nýr tryggingasjóður, Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta, sem varð til með sameiningu Tryggingasjóðs viðskiptabanka, innstæðudeildar Tryggingasjóðs sparisjóða og nýs tryggingakerfis fyrir fjárfesta. Samkvæmt 19. gr. áður nefndra laga var sparisjóðum heimilt að stofna sjálfseignarstofnanir, öryggissjóði, í því skyni að tryggja hagsmuni viðskiptamanna og fjárhagslegt öryggi sparisjóða.
Á aukafundi Tryggingasjóðs sparisjóða, sem haldinn var 10. mars 2000, voru samþykktar nýjar samþykktir fyrir „nýjan" Tryggingasjóð sparisjóða, öryggissjóð sem byggður var á lánadeild „gamla” Tryggingasjóðsins. Eins og fram kemur í samþykktunum er meginhlutverk sjóðsins að tryggja hagsmuni viðskiptamanna sparisjóða og í því skyni fjárhagslegt öryggi sparisjóða og full skil á innlánsfé við endurskipulagningu og slit sparisjóða. Í 2. mgr. 19. greinar laga nr. 98/1999 segir m.a.:
Til að tryggja hagsmuni viðskiptamanna og í því skyni fjárhagslegt öryggi viðskiptabanka eða sparisjóðs getur öryggissjóður veitt lán eða yfirtekið vissar eignir, gengið í ábyrgðir, bætt sérstakt tap og kostnað sem viðskiptabanki eða sparisjóður verður fyrir og veitt viðskiptabönkum eða sparisjóðum stuðning að öðru leyti á hvern þann hátt sem stjórnir sjóðanna ákveða í samræmi við ákvæði laga þessara og samþykkta sjóðsins. Í þessu skyni er öryggissjóði heimilt að láta rannsaka rekstur og efnahag viðskiptabanka eða sparisjóðs.
Tryggingasjóður hefur undanfarin ár aukið eftirlit sitt jafnt og þétt, m.a. með reglulegum úttektum á útlánum og vanskilum sparisjóða og með árlegum heimsóknum stjórnar Tryggingasjóðs til nokkurra sparisjóða þar sem farið er ítarlega yfir fjárhagsstöðu þeirra. Með ráðningu framkvæmdastjóra Tryggingasjóðs sparisjóða í fullt starf haustið 2004 verður eftirlits- og forvarnarstarf sjóðsins aukið enn frekar auk þess sem sjóðurinn býður nú fram þjónustu sína við innri endurskoðun smærri sparisjóða.
Stjórn Tryggingasjóðs sparisjóða 2009-2010
Jón Finnbogason, Byr-sparisjóði (formaður)
Ólafur Elísson, Sparisjóði Vestmannaeyja (varaformaður)
Ásgeir Sólbergsson, Sparisjóði Bolungarvíkur
Vilhjálmur G. Pálsson, Sparisjóði Norðfjarðar
auk fulltrúa ráðherra sem er Kjartan Gunnarsson
Varamenn eru
Angantýr Jónasson, Sparisjóðnum í Keflavík
Ingvi Þór Björnsson, Sparisjóði Höfðhverfinga
Ragnar Z. Guðjónsson, Byr-sparisjóði
Guðjón Guðmundsson, SÍSP
