Sparisjóðirnir á Íslandi hafa ávallt lagt áherslu á persónulega og faglega þjónustu og kappkostað að þjóna einstaklingum, smærri og millistórum fyrirtækjum. Þessi sýn á verkefni dagsins hafa skilað sparisjóðunum ánægðustu viðskiptavinum íslenskra fjármálafyrirtækja 10 ár í röð eða allt frá því mælingar hófust.
Sparisjóðirnir hafa alltaf lagt höfuðáherslu á að þjónusta íslenskt samfélag og hafa sótt í takmörkuðu mæli út fyrir landsteinana í starfsemi sinni. Almenningur á Íslandi hefur kunnað að meta þær áherslur.
Kynningarátakið Áfram fyrir þig og þína er ætlað að vekja Íslendinga og stjórnvöld til vitundar um nauðsyn þess að standa vörð um sparisjóðina þannig að tryggt verði að jafnræðis sé gætt við endurreisn íslensk fjármálalífs.
Hér til vinstri getur þú kynnt þér nánar hlutverk og starfsemi sparisjóðanna í landinu
Kveðja,
starfsfólk sparisjóðanna