Lærdómur sögunnar

Sparisjóðir eiga sér alllanga sögu hérlendis – að minnsta kosti borið saman við önnur fjármálafyrirtæki. Fyrsti eiginlegi sparisjóðurinn var stofnaður á Seyðisfirði árið 1868, Sparisjóður Múlasýslna. Hann varð ekki langlífur og hætti starfsemi upp úr 1870. Reyndar má segja að saga sparisjóða sé eldri því á árunum 1858-1864 var starfandi sparisjóður í Mývatnssveit og kallaðist hann Sparisjóður búlausra í Skútustaðahreppi.
 
Elsti sparisjóðurinn sem enn starfar er Sparisjóður Siglufjarðar sem stofnaður var árið 1873.
 
Allt frá þeim tíma hefur saga sparisjóðanna verið samofin sögu þjóðarinnar. Saga sigra og erfiðleika, væntinga og framfara. Með sterkri stöðu sparisjóðanna um ókomin ár stuðlum við að bjartri framtíð - fyrir þig og þína.
Samfélagsleg ábyrgð
 




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð