Tryggjum samkeppni

Það voru tímamótalög sem samþykkt voru á alþingi þ. 1. janúar 1986 um starfsemi sparisjóðanna á Íslandi (lög nr. 87/1985). Í þeim var tryggt að starfsskilyrði sparisjóðanna yrðu með svipuðum hætti og bankanna en þetta hafði lengi verið baráttumál Sambands íslenskra sparisjóða. Síðari lög hafa síðan stuðlað að því að sparisjóðirnir standast samanburð við önnur fjármálafyrirtæki hvað samkeppni varðar.
 
Sparisjóðirnir eru einu fjármálafyrirtækin sem í dag veita alla almenna bankaþjónustu og starfa án atbeina ríkisvaldsins. Þeir gegna því lykilhlutverki í samkeppni við ríkisbankana þrjá. Virk samkeppni á bankamarkaði er nauðsynleg fyrir hagsmuni neytenda – fyrir þig og þína.
 
Sparisjóðirnir stefna að því að styrkja stöðu sína enn frekar og sjá fjölmörg tækifæri í stöðunni. Þeir byggja á sömu gildum nú og þeir hafa ávallt gert með hagsmuni viðskiptavinanna í fyrirrúmi.
Samfélagsleg ábyrgð
 




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð