Ánægðustu viðskiptavinirnir
Persónuleg og vönduð fjármálaþjónusta hefur skilað sparisjóðunum ánægðustu viðskiptavinunum 11 ár í röð eða allt frá því mælingar hófust.
Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn og Byr, voru í efstu sætunum árið 2009 og var afgerandi munur á sparisjóðunum og bönkunum.
Vaxandi ánægja er með þjónustu sparisjóðanna sem er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að almennt fer óánægja vaxandi meðal viðskiptavina íslenskra fjármálafyrirtækja.
Sparisjóðirnir hafa ávallt lagt áherslu á persónulega og faglega þjónustu í starfsemi sinni og hefur sérstök áhersla verið lögð á að þjónusta einstaklinga, smærri og millistór fyrirtæki á Íslandi.
Viðurkenningin sem felst í Ánægjuvoginni er starfsmönnum sparisjóðanna mikil hvatning um að halda áfram á sömu braut.