Forsenda endurreisnar íslensks efnahagslífs er tilvist öflugra fjármálastofnana sem geta stutt við heimilin og fyrirtækin í landinu.
Sparisjóðirnir hafa sýnt og sannað að viðskiptavinirnir treysta þeim best til að mæta þeirra þörfum.
Fjórðungur landsmanna er í viðskiptum við sparisjóðina og því er afar mikilvægt að fyllsta jafnræðis sé gætt gagnvart þeim.
Forsenda þess að sparisjóðirnir geti veitt samkeppnishæfa þjónustu og gætt hagsmuna viðskiptavina sinna er að fyllsta jafnræðis sé gætt í öllum aðgerðum stjórnvalda við endurreisn íslensks fjármálakerfis. Virk samkeppni fjármálafyrirtækja með fjölbreytt eignarhald stuðlar að heilbrigðu fjármálakerfi.