Fjölmiðlar

Á þessari síðu má nálgast nýjustu fréttatilkynningar frá Sambandi íslenskra sparisjóða og sparisjóðunum. Er síðan að mestu leyti hugsuð sem leiðarvísir fyrir fjölmiðlafólk þar sem það getur nálgast flestar handhægar upplýsingar um sparisjóðina, stjórnir þeirra, skiptingu innan sparisjóðafjölskyldunnar ásamt merkjum sparisjóðanna sem þeir vilja láta nota í umfjöllun um þá.
 
Samband íslenskra sparisjóða eru regnhlífarsamtök fyrir alla sparisjóði í landinu. Þau voru stofnuð í október árið 1967 og hafa því verið starfrækt í rétt rúm 40 ár. Sparisjóðirnir taka oft saman höndum og koma þá fram undir merkinu Sparisjóðirnir á Íslandi.
 
Á Íslandi eru 12 sjálfstætt starfandi sparisjóðir og 11 þeirra auglýsa undir merkinu Sparisjóðurinn. BYR, ásamt Frjálsa fjárfestingabankanum og S24, eru aðskildir því markaðssamstarfi og auglýsa undir eigin merki.
 
Allir sparisjóðir eru aðilar að Tryggingasjóði sparisjóða (TRSP) sem er öryggissjóður og starfar skv. lögum nr. 98/1999. Framkvæmdastjóri TRSP er Hrefna Gunnarsdóttir.
 
Miklar sviptingar hafa verið í sparisjóðafjölskyldunni undanfarin ár. Af þeim má helst nefna að árið 2006 sameinaðist Sparisjóður Ólafsvíkur Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóður Vélstjóra og Hafnarfjarðar sameinuðust undir nafninu Byr-sparisjóður. Árið 2007 fór Sparisjóður Norðlendinga og Sparisjóður Kópavogs inn í Byr-sparisjóð og Sparisjóður Húnaþings og Stranda og Vestfirðinga semeinuðust Sparisjóðnum í Keflavík.

Fyrri parts ársins 2008 urðu Sparisjóður Siglufjarðar og Sparisjóður Skagafjarðar að Afli-sparisjóð sem er í eigu Sparisjóðsins í Mýrasýslu, eins og sparisjóður Ólafsfjarðar. Þá er Sparisjóður Hornafjarðar og Sparisjóður Suðurlands í eigu Sparisjóðs Vestmannaeyja.



Handhægt


Spurt og svarað

Undir SISP - sparisjóðir er hægt að sjá yfirlit og kort með mynd af öllum sparisjóðunum


Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð