Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð er hluti af stefnu sparisjóðanna. Þeir hafa ávallt tekið mikinn þátt í uppbyggingu samfélagsins með ýmsum hætti í formi styrkja og þátttöku í ýmsum verkefnum sem stuðla að betra umhverfi og samfélagi fyrir viðskiptavinina og fjölskyldur þeirra. Það er mikilvægt að þeirri stefnu sé framfylgt í gegnum súrt og sætt og að sparisjóðirnir standi sem fyrr við bakið á fólkinu í landinu.
 
Sparisjóðirnir hafa komið að ýmsum málum sameiginlega,og stutt við t.d. Íslensku menntaverðlaunin, Stóru upplestrarkeppnina, átak í geðheilbrigðismálum auk þess sem hver sparisjóður fyrir sig hefur styrkt félagsleg verkefni, m.a. í íþrótta- og æskulýðsmálum í sinni heimabyggð.
 
Bygging menningarhúss á Dalvík er dæmi um afar rausnarlegt framlag eins sparisjóðs, Sparisjóðs Svarfdæla til síns nærsamfélags.
 
Sterkir sparisjóðir stuðla að betra samfélagi
Samfélagsleg ábyrgð
.




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð