Málefni

Sparisjóðirnir á Íslandi hafa frá upphafi lagt mikið af mörkum til mannlífs hver á sínu svæði með því að styðja við atvinnulíf og styrkja íþróttastarf, menningu, menntun og ýmis góðgerðarmál. Í heild hafa sparisjóðirnir lagt hlutfallslega miklu meira af mörkum til samfélagsins á þennan hátt en aðrar fjármálastofnanir. Þannig hafa sparisjóðirnir í heild árlega lagt vel á þriðja hundrað milljónir í þennan málaflokk. Sameiginlega hafa sparisjóðirnir á Íslandi jafnframt tekið þátt í nokkrum mikilvægum verkefnum.
 
Þau sameiginlegu verkefni, sem sparisjóðirnir taka þátt í og unnið er að núna, eru m.a. eftirfarandi: Íslensku menntaverðlaunin, Stóra upplestrarkeppnin, söfnun fyrir Kiwanis hreyfinguna, málefni eldri borgara og Hraun í Öxnadal. Fræðast má meira um verkefnin hér til vinstri.
 
 

 




Flýtileiðir

Leit



Skipta um leturstærð